Launakerfi fyrir lítil fyrirtæki

Launin klár á mínútum. Skilin sjá um sig sjálf.

Salarium reiknar launin, býr til launaseðla og gengur frá skilum til Skattsins og lífeyrissjóða. Þú þarft ekki launadeild, bara nokkrar mínútur um mánaðamót.

Þróað á Íslandi af MMV ehf., sem hefur aðstoðað lítil fyrirtæki með bókhald og rekstur um árabil.

Yfirlitssíða Salarium með fjölda starfsmanna, launum ársins, loknum launakeyrslum og flýtiaðgerðum

Mánaðamótin eiga ekki að taka heilan dag

Flókin kerfi

Flest launakerfi eru hönnuð fyrir stór fyrirtæki með heila launadeild. Þú þarft bara að borga fáum starfsmönnum rétt.

Skil á mörgum stöðum

Staðgreiðsla, tryggingagjald og lífeyrissjóðir, hvert með sín skil og sína fresti.

Dýrar villur

Ein röng prósenta eða gleymdur frestur kostar tíma, álag og jafnvel dráttarvexti.

Launakerfið

Allt sem launavinnslan þarf, á einum stað

Sjálfvirkar launakeyrslur

Settu upp einu sinni. Salarium sér um rest.

Ákveddu tímabilið, til dæmis janúar til desember, og Salarium keyrir launin sjálfkrafa í hverjum mánuði. Fyrir fyrirtæki með föst laun þýðir það að mánaðamótin eru nánast búin áður en þau byrja.

Sjálfvirk launakeyrsla fyrir janúar til desember 2026 merkt virk
Bókhald og útflutningur

Beint í bókhaldið, án tvískráningar

Sendu launin í bókhaldið sem drög til yfirferðar, ekkert er bókað án þíns samþykkis. Mánaðaryfirlit sýnir heildarlaunakostnað með mótframlagi í lífeyrissjóð og tryggingagjaldi, og allt má flytja út í PDF eða Excel.

Mánaðaryfirlit með hnappi til að senda laun mánaðarins í bókhald og flytja út PDF
Launamiðar

Launamiðar til Skattsins í lok árs

Salarium reiknar launaframtalið eftir mánuðum og gengur frá gagnaskilum á launamiðum til Skattsins. Þú sérð stöðuna fyrir hvert tekjuár á einum stað.

Launamiðar til skatts með stöðu eftir tekjuárum og hnappi til að vinna skýrslu

Salarium sér um

Staðgreiðslu og persónuafslátt
Tryggingagjald
Lífeyrissjóði og mótframlag
Launaseðla
Sjálfvirkar launakeyrslur
Drög í bókhald
Launamiða til Skattsins
Útflutning í PDF og Excel

Svona virkar það

1

Skráðu starfsmennina

Kennitala, laun og lífeyrissjóður. Einu sinni, svo er það klárt.

2

Keyrðu launin

Handvirkt eða sjálfkrafa í hverjum mánuði. Salarium reiknar allt hitt.

3

Samþykktu og skilaðu

Launaseðlar verða til, skilin til Skattsins og lífeyrissjóða eru tilbúin og drögin fara í bókhaldið.

Ertu bókari með marga litla viðskiptavini?

Viltu nota Salarium fyrir viðskiptavini þína? Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þinni stofu.

Ræðum samstarf

Spurt og svarað

Þarf ég að vera bókari til að nota kerfið?

Nei. Salarium er hannað fyrir eigendur og stjórnendur lítilla fyrirtækja sem vilja klára launin sjálfir á skömmum tíma.

Bókar Salarium beint í bókhaldið mitt?

Salarium býr til drög í bókhaldinu til yfirferðar. Ekkert er bókað fyrr en þú eða bókarinn þinn hefur farið yfir það.

Hvað gerist þegar reglur eða prósentur breytast?

Við uppfærum kerfið þegar breytingar taka gildi, svo útreikningar fylgja gildandi reglum.

Hvernig byrja ég?

Hafðu samband og við sýnum þér kerfið og aðstoðum þig við að komast af stað.

Hvert leita ég ef eitthvað kemur upp á?

Hringdu í 786 2800 eða sendu póst á mmv@mmv.is. Þú talar við fólkið sem þróar kerfið.